Ertu frumkvöðlakona? Ertu með góða hugmynd? Ertu að velta fyrir þér að stofna fyrirtæki? Eða langar þig að efla tengslanetið?
Vertu með og taktu frá 18. APRÍL 2018!
Ráðstefna fyrir frumkvöðlakonur samtíðar og framtíðar verður í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Sauðárkróki 18. apríl n.k.
Á ráðstefnunni verður boðið upp á fyrirtækjakynningar, fyrirlestra og örvinnustofur fyrir frumkvöðlakonur. Árangur FREE Evrópuverkefnisins verður kynnt og við heyrum frá þátttakendum í verkefninu. Að lokum kemur Sirrý Arnarsdóttir, fjölmiðlakona og gefur góð ráð til frumkvöðla til að koma sér og fyrirtækinu á framfæri.
Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:
Kl. 11.30-12.30 Húsið opnar og boðið upp á hressingu.
Fyrirtækjakynning kvenna á landsbyggðinni
12.30-14.00 Kynning á Free verkefninu og árangri þess, netþjálfun, hæfnihringir og tengslanet. Þátttakendur segja frá.
14.00-14.50 Örvinnustofur – sjá lýsingu hér að neðan
ATH Nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofurnar, vinsamlegast smelltu hér til að skrá þig:
15.00-16.00 Sirrý Arnardóttir, fjölmiðlakona með meiru leiðir þátttakendur
„Fram í sviðsljósið (óskjálfandi og með sól í bringu)“.
Fyrirlestur Sirrýjar fjallar um að koma sér/vöru/hugmynd á framfæri, standa með sér og nýta tækifærið vel. Fjallar hún á hagnýtan hátt um það að standa með sér, beinn í baki með sjálfstraustið í lagi, nýta sér kvíðann og koma málinu í höfn. Komið er inn á atriði eins og að undirbúa óundirbúna ræðu, halda flotta kynningu, skapa tengslanet og þora að skína.
16:00-16:15 Tengslamyndun og ráðstefnuslit
Konur sem vilja nota tækifærðið og kynna vörur sínar/þjónustu og fyrirtæki er bent á að snúa sér til SSNV sem sér um skipulagningu fyrirtækjasýningarinnar. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirtækja sem vilja vera með á fyrirtækjasýningu hjá sveinbjorg@ssnv.is fyrir sem fyrst. Vonast er til að konur sem starfrækja fyrirtæki taki taki góðan þátt og sýni þannig kraft og framlag kvenna til atvinnureksturs á svæðinu.
Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna Skráning á lokaráðstefnu
Dagskrá örvinnustofa:
Hönnunarhugsun í fyrirtækjarekstri
Með hönnunarhugsun er á skapandi hátt notast við hugsun og aðferðir til að nálgast verkefni, safna saman upplýsingum og spyrja gagnrýnna spurninga til að leita að nýrri eða betri lausn.
Farið verður yfir helstu þætti hönnunarhusunar og þátttakendur gera stutt verkefni til að fá innsýn í gildi hennar og framkvæmd.
Umsjón: Elfa Hlín Pétursdóttir verkefnastjóri hjá Austurbrú.
Stefnumótun
Um er að ræða gagnvirka vinnustofu þar sem þátttakendur læra um stefnumótun í gegnum leik. Hann snýst um að búa til vöru (kassa) sem þarf síðan að selja á markaði. Þátttakendur þurfa síðan að huga að þáttum eins og leiðtogafærni, áhættu, teymisvinnu og hvernig á að verðleggja hluti. Vinnustofan verður haldin á ensku en þýdd á íslensku.
Umsjón; Marina Larios, Inova og Ásdís Guðmundsdóttir, Vinnumálastofnun
Markaðssetning á samfélagsmiðlum – hvernig verðum við sýnileg?
Markaðssetning á samfélagsmiðlum er einföld og áhrifarík leið til að ná til hugsanlegs markhóps. Hún gengur út á það að para saman fyrirtæki og neytendur sem hafa áhuga á vörunni eða að virkja þá sem fyrir eru og láta virði samskiptanna vaxa. Kynntar verða misvel heppnaðar tilraunir til markaðssetningar og þátttakendur gera stutt verkefni til að öðlast betri skilning á mikilvægi vel heppnaðar markaðssetningar á samfélagsmiðlum.
Umsjón: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi SSNV
Related Posts