Aðalmarkmið Free verkefnisins, sem er styrkt af Evrópusambandinu, er að aðstoða frumkvöðlakonur á landsbyggðinni til að koma hugmyndum sínum og fyrirtækjum á framfæri með fræðslu og hvatningu auk þess að efla tengslanet kvenna. Markhópur verkefnisins eru frumkvöðlakonur sem hafa nú þegar viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd eða hafa nýlega stofnað fyrirtæki. Verkefnið er tilraunaverkefni og verður í boði í fimm löndum sem eru auk Íslands, Bretland, Króatía, Litháen og Búlgaría. Sjónum er einkum að landssvæðum sem hafa glímt við fábreytni í atvinnulífi og búið við neikvæða byggðaþróun og mun fræðslan á Íslandi verða í boði á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi.
Mikilvægur hluti verkefnisins snýst um að bjóða upp á nám/þjálfun á netinu þar sem áherslan er lögð á færni sem tengist fyrirtækjarekstri, en auk þess verður boðið upp á þjálfunarhringi sem byggja á hugmyndafræði sem samstarfsaðilinn Inova á Bretlandi hefur þróað á síðustu árum. Notast er við aðferðir aðgerðarnáms við lausn vandamála og unnið með markmiðasetningu og sjálfsskoðun í því skyni að efla persónulega hæfni frumkvöðla. Miðað er við að fræðslan hefjist í janúar á næsta ári eða þegar búið verður að þróa námsefnið.
Tengslanet frumkvöðlakvenna á svæðunum verða sett upp og munu leiðtogar, frumkvöðlakonur sem eru í rekstri stýra þeim á hverju svæði fyrir sig. Gert er ráð fyrir því að tengslanetið starfi í 10 mánuði að lágmarki á tilraunatímabilinu og að a.m.k. sex fundir verði haldnir á tímabilinu en þróun hvers tengslanets og framtíð er í höndum leiðtoganna sjálfra og netsins sem myndað verður og þannig því reynt að virkja grasrótina á hverjum stað.
Dagana 26.-30.september síðastliðinn fór hópur héðan til Sheffield þar sem fram fór fræðsla fyrir tengslanetsleiðtoga allra landanna í verkefninu. Þeir þrír leiðtogar sem sóttu fræðsluna og höfðu verið valdir til að taka þátt í verkefninu á Íslandi eru þær Bryndís Sigurðardóttir, Ísafirði, Lilja Gunnlaugsdóttir, Sauðárkróki og Anna Katrín Svavarsdóttir, Egilsstöðum.
Á námskeiðinu fengu leiðtogarnir fræðslu um tengslanet sem sett hafa verið upp í dreifðum byggðum á Bretlandi, fræðslu um þjálfun og kennslu (coaching and mentoring) en auk þess var farið í fyrirtækjaheimsóknir í Peak District héraðið þar sem fyrirtæki kvenna á svæðinu voru heimsótt. Einnig fengu leiðtogarnir tækifæri til að kynnast og mynda tengsl sín á milli en skemmtilegur andi myndaðist milli þeirra 9 leiðtoga sem sóttu fræðsluna.
Við spurðum tengslanetsleiðtogana hvernig tókst til með fræðsluna og hvaða væntingar þær hafa til tengslanetanna.
Lilja: „Námskeiðið úti var virkilega lærdómsríkt og opnaði augu mín enn fremur fyrir því hve mikilvægt það er að eiga gott tengslanet fólks í sömu sporum og maður sjálfur. Með því að nýta styrk hvors annars og þekkingu kemur út sterk heild sem allir græða á.
Ég vonast til að tengslanetið á mínu svæði styrki þá sem eru fyrir með fyrirtækjarekstur og gefi þeim sem eru í startholunum eða með hugmynd kjark til að taka stökkið og framkvæma, sem bætir atvinnulíf og þar af leiðandi mannlífið á svæðinu“.
Bryndís: „Það er grundvallaratriði í atvinnurekstri að hafa gott tengslanet, bæði til að koma vöru eða þjónustu á framfæri og til að draga að sér þekkingu og reynslu annarra. Sérstaklega er mikilvægt fyrir einyrkja að hafa gott tengslanet, til að sækja sér félagsskap og til að deila reynslusögum. Öll ferðalög hefjast á fyrsta skrefinu og flestur rekstur hefst á frumkvöðlinum eða einyrkjanum og þar sé ég tækifæri fyrir þetta nýja tengslanet, til að styðja og styrkja konur sem eru að taka sín fyrstu skref í rekstri“.
Anna Katrín: „Mér fannst afar fróðlegt og skemmtilegt að kynnast konum í atvinnurekstri frá öðrum löndum, finna út hvað var líkt og ólíkt. Ég sé fyrir mér að tengslanet kvenna í atvinnurekstri hér fyrir austan verði vettvangur kvenna til fræðslu, stuðnings, nýrra tækifæra og tengslamyndunar“.
Allar nánari upplýsingar um tengslanetin má finna á heimasíðu verkefninsins www.ruralwomeninbusiness.eu en einnig má slá á þráðinn til Ásdísar Guðmundsdóttur verkefnastjóra eða Guðrúnar Stellu forstöðukonu Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum í síma 515-4800.
Hópurinn í Sheffield
Í skoðunarferð í ostagerð