Vinnumálastofnun tekur þátt í Evrópuverkefni sem heitir EMPOWER sem hefur hlotið styrk úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Verkefnið snýst um að þróa fræðsluefni fyrir ráðgjafa og sjálfboðaliða sem vinna með konum af erlendum uppruna. Markmið er að aðstoða konur til að þróa starfshæfni sína og getu til að auka möguleika á vinnumarkaði.
Þátttakendur fá einnig möguleika á því að fá aðstoð við að þróa eigin viðskiptahugmynd.
Námsefni verður þróað fyrir þátttakendur í námsþáttum sem tengjast persónulegri þjálfun og fyrirtækjarekstri.
Fyrsti verkþátturinn er hafinn en það er rannsókn á stöðu hópanna hér á landi. Leitað verður eftir þátttakendum í rýnihópavinnu auk þess sem gerð verður könnun þar sem spurt verður um fræðsluþarfir.
Eftir rannsóknina mun kennsluefnið verða þróað enn frekar og mun námskeiðið hefjast Í byrjun árs 2017. Tveir tilraunahópar munu fá fræðslu sem stendur yfir í fjóra mánuði í senn en hópurinn mun hittast átta sinnum á tímabilinu auk þess sem gert er ráð fyrir verkefnavinnu.
Samstarfsaðilar eru fjórir; Inova í Bretlandi, Vinnumálastofnun á Íslandi, KMOP á Grikklandi og SIF í Litháen en Inova stýrir verkefninu. Á Íslandi er velferðarráðuneytið ennfremur samstarfsaðili í verkefninu.
Starfsmenn EMPOWER eru Ásdís Guðmundsdóttir,Ingibjörg Ebba Björnsdóttir og Sigrún Rós Elmers og veita þær nánari upplýsingar um verkefnið.
ingibjorg.bjornsdottir@vmst.is
Sími 515-4800