Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað þann 19.maí síðastliðinn og fengu 30 verkefni styrki samtals að fjárhæð 35.000.000 kr.

Félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, afhenti styrkina.

Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað frá árinu 1991 og eru þeir ætlaðir frumkvöðlakonum eða fyrirtækjum í þeirra eigu. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.

Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum.

Unnt er að sækja um styrki vegna vinnu við gerð viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar, hönnunar og vegna launakostnaðar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar.

Í ár bárust 253 umsóknir og hefur ráðgjafarnefnd metið þær á undanförnum vikum. Nefndina skipa þær Herdís Á. Sæmundardóttir, Guðrún Stella Gissurardóttir, Elín Gróa Karlsdóttir og Soffía Gísladóttir.

Hæsta styrkinn í ár, 3 milljónir króna,  hlutu þær Kristjana Ingibjörg Jacobsen og Ingibjörg Björgvinsdóttir fyrir verkefnið „Nýjar lausnir í hafrannsóknum og mengunarvöktun“.

Sérstakan hvatningarstyrk að upphæð kr. 1.000.000 hlaut Katla Margrét Aradóttir fyrir verkefni sitt Sara, stelpa með ADHD en markmið þess er að útbúa verkfærakistu sem kemur að notum fyrir stelpur og fullorðnar konur með ADHD.

Af öðrum spennandi verkefnum má nefna þróun á gagnvirku lestrarforriti, þróun á snjallforriti fyrir foreldra sem þurfa barnapössun, rannsókn á hampi sem byggingarefni, smáforrit sem heldur utan um upplýsingar þeirra sem eru með skjaldkirtilssjúkdóma, þróun á íslenskum jurtatrefjum, þróun á snoðull í kodda, framleiðsla á línolíumálningu og hugbúnaður sem mælir kolefnisbindingu í skógum svo eitthvað sé nefnt.

Fyrirtækjasmiðja

Að þessu sinni var styrkhöfum er fengu styrk til gerðar viðskiptaáætlunar boðið upp á þátttöku í Fyrirtækjasmiðju á netinu. Markmið smiðjunnar,  sem var í umsjón Einars Sigvaldasonar hjá Senza, var að þátttakendur myndu þróa viðskiptahugmynd sína og halda kynningu fyrir dómnefnd.   Í boði var ein milljón króna í verðlaun fyrir bestu kynninguna.
Átta teymi tóku þátt og kynntu verkefni sín fyrir dómnefnd í gær, allar kynningarnar voru frábærar og stóð dómnefnd frammi fyrir erfiðri ákvörðun.
En að lokum var niðurstaðan ljós, og hlaut Romi Schmitz á Þórshöfn verðlaunin fyrir verkefni sitt Brauðgerð Romiar.  Verkefnið snýst um að selja brauð í áskrift til heimila og fyrirtækja.

Í dómnefnd sátu Guðrún Tinna Ólafsdóttir, Kolfinna Kristínardóttir, María Kristín Gylfadóttir og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir.

Í umsögn dómnefndar kemur þetta fram:

Hugmyndin er einföld en hún er mjög vel útfærð – sala á brauði til heimila, fyrirtækja og ferðaþjónustuaðila – í gegnum áskriftarmódel.  Engin slík starfsemi er starfrækt á Íslandi í dag. Kynningin var kjarnyrt og hugmyndinni gerð mjög góð skil.

Hugmyndin mætir núverandi þörf á Norðausturlandi þar sem ekkert bakarí er starfrækt sem stendur.  Þarfir markhóps eru sömuleiðis að breytast hratt í átt að auknum gæðum, staðbundinni framleiðslu og sjálfbærni.  Þannig er sjálfbærni einnig grundvöllur starfseminnar – góð nýting auðlinda, tíma og samnýting aðstöðu. Hugmyndin byggir  þannig á samstarfi með öðrum frumkvöðlum á svæðinu, s.s. gistiþjónustunni Grásteini og garðyrkjustöðinni Akri.

Sömuleiðis eru tækifæri til vaxtar í gegnum fjölmörg afleidd tækifæri, svo sem pantanir í gegnum hugbúnað og í gegnum sérleyfissamninga fyrir frumkvöðla í öðrum byggðakjörnum þar sem sama vandamál er til staðar.

Lista yfir verkefni sem hlutu styrk auk upplýsinga um vinningshafa Fyrirtækjasmiðjunnar má finna hér.

Við óskum Romi og öllum styrkhöfum innilega til hamingju!

Ljósmyndari: Silla Páls

 

Styrkhafar ásamt ráðherra

Þátttakendur í Fyrirtækjasmiðjunni ásamt verkefnisstjóra Atvinnumála kvenna

Romi Schmitz

Related Posts