Þann 13.maí var styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað við hátíðlega athöfn í húsnæði Vinnumálastofnunar. Að þessu sinni bárust 239 umsóknir um fjölbreytt verkefni og ljóst að hugmyndaauðgi og kraftur kvenna á sér engin takmörk!
Það var ráðuneytisstjóri félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, Erna Kristín Blöndal, sem úthlutaði 25 styrkjum að upphæð 38.000.000 til fjölbreyttra verkefna hvaðanæva af landinu.
32.600.000 krónum var veitt til ýmissa verkefna tengdum vöruþróunar, markaðssetningar og launakostnaði og 5.400.000 krónum til gerðar viðskiptaáætlana.
Að þessu sinni hvöttum við konur af erlendum uppruna til þátttöku og bar það þann ánægjulega árangur að 11 af styrkhöfum ársins eru af erlendum uppruna.
Eins og síðustu ár þá bjóðum við styrkhöfum upp á þátttöku í fyrirtækjasmiðju, sem er 6 vikna verkefni þar sem unnið er að því að greina markhópa og markað, farið er í sölustefnu og markaðsmál, fjármál og áætlanagerð, fjármögnun og rekstur, kynningartækni og jafningjaendurgjöf. Þessi smiðja er þáttakendum að kostnaðarlausu og er frábært tækifæri til að leyfa verkefnum að stökkva af stað út í cosmosið!
Hæsta styrkinn að þessu sinni hlaut Guðrún Sigríður Ágústsdóttir en hún fékk 4.000.000 króna styrk til vöruþróunar, launakostnaðar og markaðssetningar vegna verkefnisns Dýpi – hafkalkmálning.
Um er að ræða nýja tegund málningar sem er framleidd úr vottaðri náttúruafurð, kalkþörungum úr Arnarfirði á Vestfjörðum og er að öllu leyti laus við plast- og rotvarnarefni, rakaopinn og hefur náttúrulega vörn gegn myglu vegna hás pH-gildis. Hráefnið, kalkþörungar allt að 16 milljón ára gamlir, er tínt, þurrkað og mulið á staðnum.
Styrkhafi er í samvinnu við Sérefni og Stoopen & Meeûs, virtasti framleiðandi steinefnamálningar í Belgíu, tekur þátt í þróun verkefnisins.
Næst hæstu styrki hlutu eftirfarandi verkefni:
Gerosion fékk styrk að upphæð kr. 3.000.000 króna til vöruþróunar verkefnisins Umhverfisvænt steinlím. Markmið verkefnisins er að koma á markað íslensku umhverfisvænu sementslausu AlSiment steinlími sem er bindiefni sem þjónar sama tilgangi og sement í byggingariðnað. Steinlímið mun byggja á íslenskum hráefnum, bæði íslensku bergi og steinefnum og svo úr iðnaðarúrgangi frá íslenskri stóriðju. Umhverfisvænt sementslaust AlSiment steinlím getur þannig verið mikilvægur þáttur í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, þar sem Ísland flytur inn til landsins um 200.000 tonn af sementi árlega.
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir fékk styrk að upphæð kr. 3.000.000 til vöruþróunar fyrir verkefnið Markaðstól fyrir afþreyingu. Verkefnið snýst um þróun á Keeps, sem er sjálfvirkur SaaS-vettvangur fyrir ferða- og afþreyingaraðila sem þurfa að halda söluefni sínu til staðar á mörgum dreifileiðum. Keeps býður upp á eitt sameiginlegt, lokað safn fyrir myndir, myndbönd, lýsingar og lykilupplýsingar um ferðir, og dreifir því efni til bókunarkerfa og beinna samskipta við viðskiptavini.
Rakel Hrund Ágústsdóttir fékk styrk að upphæð kr. 3.000.000 til vöruþróunar og markaðssetningar verkefnisins RÁ – jafnvægi og flæði.
Hugmyndin byggir á því að þróa sérhæfða þjónustu fyrir fólk með flóknar áskoranir. Kjarninn í starfseminni er H.A.F Yoga – Holistic Aqua Flow Yoga / í vatni, sem er sérstaklega aðlagað einstaklingum með skerta hreyfigetu og flóknar áskoranir. Starfsemin krefst aukins undirbúnings, samhæfingar við aðstoðarmenn og sveigjanleika í framkvæmd til að tryggja öryggi og gæði þjónustunnar.
Við óskum öllum styrkhöfum innilega til hamingju með styrk sína og hlökkum til að fylgjast með framvindu verkefnanna.
Lista yfir verkefni er hlutu styrk má finna á heimasíðu Atvinnumála kvenna hér


