Viltu skoða lánamöguleika hjá Svanna-lánatryggingasjóði?
Þann 10. september kl.17.00-18.00 verður kynningarfundur um Svanna-lánatryggingasjóð í húsnæði Landsbankans að Reykjastræti 6.
Á fundinum munu lánamöguleikar sjóðsins verða kynntir og Landsbankinn mun segja frá sinni aðkomu að sjóðnum.
Ólöf Rún Tryggvadóttir hjá Eylíf mun segja frá fyrirtæki sínu og sinni reynslu af því að taka lán hjá sjóðnum.
Léttar veitingar og spjall í lokin.
Allir velkomnir!


