Nú er opið fyrir skráningu á hraðalinn Startup Landið sem er nýsköpunarhraðall fyrir þau sem hafa góðar hugmyndir á landsbyggðunum sem styrkja samfélög, skapa störf og skila verðmætum á landsbyggðunum.
Að skipulagningu standa samtök landshluta hringinn í kringum landið en markmiðið er að skapa vettvang fyrir frumkvöðla og áhugafólk um nýsköpun sem vill láta að sér kveða.
Startup Landið hefst í september 2025 og valin verða teymi til þátttöku sem munu frá aðstoð til þess að þróa hugmynd sína áfram.
Hraðallinn er byggður upp á fyrirlestrum, vinnustofum, fyrirtækjaheimsóknum og ráðgjöf frá sérfræðingum.
Umsóknarfrestur er til og með 1.september og er sótt um á heimasíðu verkefnisins hér.

