Kraumar krafturinn í þér?

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

February 1, 2022
Atvinnumál kvenna, Fréttir, Frumkvöðlakonur, Styrkir

Vinnumálastofnun/félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2022 lausa til umsóknar!

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000

 

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000 en styrkur er veittur fyrir helming af kostnaði verkefna.

Umsóknarfrestur er frá 1.febrúar til og með 3.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Að þessu sinni er sérstök áhersla á að hvetja frumkvöðlakonur á landsbyggðinni til að sækja um. 

Hér á heimasíðunni  má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar.

Einnig er fyrirhugað að halda kynningarfund um styrkina um miðjan febrúar og verður dagsetning kynnt síðar.

asdis.gudmundsdottir@vmst.is

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna

https://twitter.com/atvinnumalkvenn

 

 

Aðrar færslur

February 11, 2025

Opið fyrir umsóknir um styrki

May 27, 2024

Lilli Tígur sigrar heiminn!

May 21, 2024

Styrkjum til Atvinnumála kvenna úthlutað

February 28, 2024

Snjöll dreifing ferskra matvæla