Styrkir til atvinnumála kvenna árið 2017

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

January 19, 2017
Fréttir, Frumkvöðlakonur, Styrkir

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2017 lausa til umsóknar.

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum

Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.

Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), til markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, vöruþróunar, hönnunar og efniskostnaðar. Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að hrinda henni í framkvæmd.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur 4.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 600.000.

Umsóknarfrestur er frá 20.janúar til og með 20.febrúar og skal sækja um rafrænt hér.
Athugið að búið er að taka í notkun nýtt umsóknarkerfi og búa þarf til aðgang að síðunni til að geta hafið umsóknarvinnuna.

Á heimasíðunni má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar.

asdis.gudmundsdottir@vmst.is

https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna

https://twitter.com/atvinnumalkvenn

 

 

 

Aðrar færslur

February 11, 2025

Opið fyrir umsóknir um styrki

May 27, 2024

Lilli Tígur sigrar heiminn!

May 21, 2024

Styrkjum til Atvinnumála kvenna úthlutað

February 28, 2024

Snjöll dreifing ferskra matvæla