Námskeið fyrir frumkvöðla í markaðssetningu á netinu

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

February 1, 2017
Fræðsla fyrir konur, Fréttir, Námskeið

Námskeið fyrir frumkvöðla í markaðssetningu á netinu

Markmið námskeiðsins er að kenna frumkvöðlum að nota þau tæki og tól sem til staðar eru á netinu til þess að markaðssetja sig og byggja upp póstlista mögulegra viðskiptavina.

Fyrir hverja? Námskeiðið hentar vel fyrir frumkvöðla sem eru að taka sín fyrstu skref í að nýta sér mátt netsins við markaðssetningu og þá sem vilja setja upp umgjörð fyrir markaðssetningu á netinu og fá aðstoð við að tengja saman ólík kerfi.

Uppsetning: Námskeiðið yrði kennt í tveimur áföngum (10 klst í heildina).

Fyrst er farið yfir heildarmyndina, hvernig þetta virkar allt saman og inngangur að þeim tækjum á netinu sem í boði eru. Þátttakendur ljúka fyrri áfanga með því að sett er saman áætlun sem hentar þeirra þörfum og fá heimaverkefni að byrja á uppsetningunni.

Seinni áfanginn er svo hugsaður sem sérsniðin tækniaðstoð við að klára uppsetningu og aðstoða við tæknimál og farið dýpra í notkun kerfanna.

Hvað er farið yfir:

  • Markaðssetning í tölvupósti (Email marketing) – hvernig þú safnar netföngum mögulegra viðskiptavina.
    • Kynning á hvaða leiðir eru í boði, kostir og gallar mismunandi forrita
      • Mailchimp / Active Campaign / Aweber
    • Uppsetning og tenging við lendingarsíðu / heimasíðu
    • Farið yfir dæmi um uppsetningu á póstlista og þeim skilaboðum sem send eru út sjálfkrafa til þeirra sem bætast á listann.
  • Lendingarsíða á netinu (Landing Pages) Lendingarsíða er í raun bara fyrsta síða sem einstaklingur lendir á þegar hann smellir á link frá þér – getur verið hluti af heimasíðunni þinni en getur líka haft önnur hlutverk, eins og að safna netföngum mögulegra viðskiptavina. Farið er yfir hvernig hægt er að búa til síður á auðveldan hátt (án mikillar tæknikunnáttu) og tengjum það við markaðssetninguna í tölvupósti.
    • LeadPages
    • Kajabi / ClickFunnels – t.d. fyrir þá sem vilja lausn til að setja inn kennsluefni á netinu
    • Býð einnig uppá kennslu í vefsíðugerð í WordPress (en sökum tíma og hversu einstaklingsmiðað það er, ekki farið í það á þessu námskeiði)
  • Samfélagsmiðlar – tæki og tól sem auðvelda þér að setja inn efni á samfélagsmiðla, skipuleggja það fram í tímann og pósta því á marga mismunandi prófíla (facebook, twitter, instagram o.s.frv.)
    • FanPage Robot / PostPlanner / Hootsuite
    • IFTTT
    • Instagress
  • Skipulag frumkvöðulsins, tímabókanir á netinu og CRM (Customer Relationship Manager)
    • Aquity Scheduling / YouCanBook.me
    • Asana / Highrise
    • Upwork

Dagsetningar: 4. febrúar frá kl. 11-17 og 11. febrúar 2017 frá kl. 12-16

Verð: 35,000 kr.

Staðsetning: Hlíðasmári 2, 4. hæð til hægri

Lágmarks þátttaka 5 manns  (Hámark 10 manns á hverju námskeiði)

Skráning fer fram með tölvupósti á lilja@sattaleidin.is og þarf að skrá sig fyrir miðnætti þann 2.febrúar.

 

Um námskeiðshaldara:

Lilja Bjarnadóttir er stofnandi Sáttaleiðarinnar ehf. sem er fyrsta íslenska fyrirtækið til að sérhæfa sig í sáttamiðlun fyrir viðskiptalífið. Við markaðssetningu Sáttaleiðarinnar hefur Lilja sökkt sér ofan í þau tæki og tól sem hægt er að nýta við markaðssetningu á netinu og er námskeiðið hugsað sem praktísk leið fyrir frumkvöðla og aðra þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í markaðssetningu á netinu til þess að stytta lærdómskúrvuna umtalsvert og fá tækniaðstoð við uppsetningu.

Lilja starfar sem sáttamiðlari, lögfræðingur og ráðgjafi við lausn deilumála. Hún lauk lögfræðiprófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011 og LL.M. gráðu frá University of Missouri í Dispute Resolution árið 2015, þar sem hún sérhæfði sig í sáttamiðlun og samningatækni.

Lilja Bjarnadóttir

Aðrar færslur

March 25, 2025

Umsóknarfresti um styrki lokið

February 11, 2025

Opið fyrir umsóknir um styrki

May 27, 2024

Lilli Tígur sigrar heiminn!

May 21, 2024

Styrkjum til Atvinnumála kvenna úthlutað