Viltu hrinda góðri hugmynd í framkvæmd?

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

December 22, 2020
Fréttir, Svanni-lánatryggingasjóður kvenna

Viltu hrinda góðri hugmynd framkvæmd innan þíns fyrirtækis og vantar fjármagn?

Umsóknarfrestur um lán með lánatryggingu er til 15.febrúar 2021.

 

Búið er að opna fyrir umsóknir í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna sem er nú að hefja sitt þriðja starfstímabil

Svanni veitir lán til fyrirtækja í eigu konu/kvenna og er hámarkslán 10 milljónir. Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann, er veitir lánin.

Sjóðurinn veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna og er hann  liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi.  Samkvæmt samþykktum sjóðsins eru hlutverk hans m.a. að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki, að auka aðgengi kvenna að fjármagni, að fjölga störfum og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi.

Sjóðurinn er í eigu forsætisráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis og Reykjavíkurborgar.

Skoða má nánari upplýsingar um lánareglur og lánskjör  á heimasíðu sjóðsins, sjá hér https://atvinnumalkvenna.is/lan/

Fjölmörg spennandi fyrirtæki hafa fengið fyrirgreiðslu hjá sjóðnum á undanförnum árum og er ljóst að þörfin á sjóð sem slíkum er mikil.


Viltu vita meira ? 

Hér má finna hlaðvarpsviðtal við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, formann sjóðsins

Hafið meiri trú á hugmyndinni

 

Hér má finna hlaðvarpsviðtal við Ásdísi Guðmundsdóttur, starfsmann sjóðsins

Atvinnumál kvenna 

 

Skoðaðu möguleikana með Svanna!

Smelltu hér til að sækja um

Aðrar færslur

March 25, 2025

Umsóknarfresti um styrki lokið

February 11, 2025

Opið fyrir umsóknir um styrki

May 27, 2024

Lilli Tígur sigrar heiminn!

May 21, 2024

Styrkjum til Atvinnumála kvenna úthlutað