Nú stendur yfir könnun á styrkveitingum styrkja til atvinnumála kvenna sem veittir eru einu sinni á ári.
Það er Maskína sem framkvæmir könnunina og vinnur úr henni. Könnunin er netkönnun en einnig er hringt út ef ekki berast svör. Skoðaðar eru úthlutanir styrkja frá árinu 2011-2016 og spurt um gengi þeirra verkefna sem styrk hlutu. Einnig er spurt um fjölda starfsmanna og stöðugilda, hvort styrkurinn hafi ráðið úrslitum um stofnun fyrirtækis, hversu flókið var að sækja um og hvort umsækjendur hafi nýtt sér heimasíðu verkefnisins.
Niðurstöður könnunarinnar verða síðan kynntar á heimasíðunni og á vettvangi Vinnumálastofnunar.
Related Posts