Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2019 lausa til umsóknar.
Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.
- Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
- Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
- Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
- Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
- Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), til markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, vöruþróunar, hönnunar og efniskostnaðar.
- Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.
Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur 4.000.000.
Umsóknarfrestur er frá 1.febrúar til og með miðnættis þann 4.mars og skal sækja um rafrænt hér á heimasíðunni.
Á síðunni má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla auk þess sem starfsmaður gefur nánari upplýsingar.
Fylgist með á Facebook:
https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna
Fylgist með á Twitter:
https://twitter.com/atvinnumalkvenn
Related Posts