Opnað verður fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna þann 7. febrúar og verður umsóknarfrestur til og með 11.mars.

Hámarksstyrkur 4 milljónir en hægt er að styrkja helming kostnaðar verkefnis.

Hægt verður að sækja um styrki til vöruþróunar, markaðssetningar og gerðar viðskiptaáætlana (600.000).

Að þessu sinni hvetjum við sérstaklega ungar konur,  landsbyggðarkonur og konur af erlendum uppruna til að sækja um.

Nánari upplýsingar verða settar hér inn á vefinn þegar nær dregur að umsóknarfresti.

Related Posts