Umsóknarfrestur um lán með lánatryggingu

This is the lede paragraph for the blog post. It should be populated with dynamic data from a WYSIWYG custom field assigned to your posts.

September 19, 2018
Fréttir, Svanni-lánatryggingasjóður kvenna

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um lán og lánatryggingar í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna. Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2018 og má nálgast umsóknir á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Eingöngu fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um lánatryggingu.   Einnig  er gerð er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.

Fullbúin viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsóknum ásamt ítarlegum fjárhagsupplýsingum.

Unnt er að sækja um lán og ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:

Markaðskostnaðar
Vöruþróunar
Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu á vöru/þjónustu

Í umsókn skulu eftirfarandi atriði koma fram:

Upplýsingar um umsækjanda
Greinargóð lýsing á verkefni/fyrirtæki, markmiðum þess og ávinningi
Hverjir koma að umsókninni, og tilgreining samstarfsaðila
Viðskiptaáætlun (ítarleg fjárhags-, og framkvæmdaráætlun)
Lýsing á fjármögnun og staðfesting fjármögnunaraðila ef þeir eru til staðar

Hægt er að sækja um lán að hámarki 10 m.kr og eru lánin veitt hjá Landsbankanum sem er samstarfsaðili sjóðsins.

Stjórn Svanna fer yfir og metur umsóknir í samvinnu og samráði við Landsbankann og er sameiginleg ákvörðun tekin um veitingar lánatrygginga.

Nánari upplýsingar veitir Ásdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Svanna í síma 513-7080  og í asdis.gudmundsdottir@vmst.is.
Ennfremur veitir starfsfólk útibúa Landsbankans upplýsingar um lánin.

 

Aðrar færslur

February 11, 2025

Opið fyrir umsóknir um styrki

May 27, 2024

Lilli Tígur sigrar heiminn!

May 21, 2024

Styrkjum til Atvinnumála kvenna úthlutað

February 28, 2024

Snjöll dreifing ferskra matvæla