Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað þann 25.maí og fengu 30 verkefni styrki að upphæð kr. 35.000 milljónir. Ásmundur Einar Daðason, velferðar- og húsnæðismálaráðherra afhenti styrkina í athöfn sem fór fram í Hörpu.
Í ár bárust 243 umsóknir og hefur ráðgjafarnefnd metið umsóknir á undanförnum vikum.
Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað síðan 1991 og eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum. Skilyrði styrkveitin
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað þann 25.maí og fengu 30 verkefni styrki að upphæð kr. 35.000 milljónir. Ásmundur Einar Daðason, velferðar- og húsnæðismálaráðherra afhenti styrkina í athöfn sem fór fram í Hörpu.
Í ár bárust 243 umsóknir og hefur ráðgjafarnefnd metið umsóknir á undanförnum vikum.
Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað síðan 1991 og eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun.
Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum. Unnt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar, hönnunar og vegna launakostnaðar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar.
Hæstu styrki hlutu þær Hildur Guðrún Baldursdóttir fyrir verkefnið „Arctic Barley“ sem loftpoppað bygg, Rakel Breiðfjörð Pálsdóttir fyrir verkefnið „Smart Nipple“ en hugmyndin snýst um að framleiða sílikon túttu með flæðimælinema í sem mælir magn brjóstamjólkur og Sigrún Jenný Barðadóttir fyrir verkefnið „Íslenskt te“ en markmiðið er að rækta te á Íslandi til útflutnings.
Lista yfir alla styrkhafa má nálgast með því að smella hér
Á undanförnum árum hafa styrkveitingarnar stutt við þróun fjölmargra nýrra fyrirtækja sem skapa störf, samfélaginu til hagsbóta. Einnig er styrkveiting sem þessi mikil hvatning fyrir styrkhafa sem er ekki síður mikilvæg þegar á hólminn er komið.
Hér má sjá styrkhafa ársins 2018