Efling kvenfrumkvöðla á landsbyggðinni
Lokaráðstefna
- apríl 2018 kl.11.30-16.00 í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki
Evrópuverkefnið FREE- Efling kvenfrumkvöðla á landsbyggðinni (Female Rural Enterprise Empowerment) er samstarfsverkefni sex aðila frá fimm löndum, en auk Vinnumálastofnunar, sem leiðir verkefnið, tekur Byggðastofnun þátt ásamt aðilum frá Bretlandi, Búlgaríu, Króatíu og Litháen.
Markmið verkefnisins er að efla frumkvöðlakonur á landsbyggðinni með því að bjóða upp á fræðsluefni á netinu, tengslanet fyrir frumkvöðlakonur og hæfnihringi á vefnum. Á ráðstefnunni býðst þátttakendum að sækja örvinnustofur og frumkvöðlakonur af Norðurlandi vestra munu kynna fyrirtæki sín við upphaf ráðstefnunnar.
Í lok ráðstefnunnar verður hin landsþekkta fjölmiðlakona, Sirrý Arnardóttir með erindið „Fram í sviðsljósið“.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á ráðstefnu og örvinnustofur á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is
Dagskrá
11.30-12.30 | Húsið opnar og boðið upp á hressingu.
Fyrirtækjakynning frumkvöðlakvenna |
||||||||||||
12.30-14.00 | Kynning á Free verkefninu og upplifun þátttakenda
|
||||||||||||
14.00-14.45 | Þrjár örvinnustofur – þú velur eina! | ||||||||||||
Hönnunarhugsun í fyrirtækjarekstri – Farið verður yfir helstu þætti hönnunarhusunar og þátttakendur gera stutt verkefni til að fá innsýn í gildi hennar og framkvæmd. Umsjón: Elfa Hlín Pétursdóttir verkefnastjóri hjá Austurbrú |
|||||||||||||
Stefnumótun – Um er að ræða gagnvirka vinnustofu þar sem þátttakendur læra um stefnumótun í gegnum skemmtilegan leik.
Umsjón: Marina Larios, Inova og Ásdís Guðmundsdóttir, Vinnumálastofnun |
|||||||||||||
Markaðssetning á samfélagsmiðlum – Þátttakendur gera stutt verkefni til að öðlast betri skilning á mikilvægi vel heppnaðar markaðssetningar á samfélagsmiðlum.
Umsjón: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi SSNV |
|||||||||||||
14.45-15.00 Kaffihlé | |||||||||||||
15.00-16.00 | Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, leiðir þátttakendur ,,Fram í sviðsljósið“ Hagnýtur fyrirlestur um að koma sér/vöru/hugmynd á framfæri, standa með sér og nýta tækifærið vel.
Sirrý fjallar á hagnýtan hátt um það að standa með sér, beinn í baki með sjálfstraustið í lagi, nýta sér kvíðann og koma málinu í höfn. Hvernig á að undirbúa óundirbúna ræðu, halda flotta kynningu, skapa tengslanet og þora að skína. Sirrý leiðir skemmtilega æfingu þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla tengslanetið. |
Enn er hægt að skrá sig á ráðstefnuna með því að smella hér
https://www.eventbrite.com/e/lokarastefna-free-efling-frumkvolakvenna-a-landsbygginni-tickets-42494518248