Frumkvöðull febrúarmánaðar er Hildur Magnúsdóttir, sem er hugmyndafræðingur fyrirtækisins Pure Natura á Sauðárkróki, en fyrirtækið framleiðir bætiefni úr innmat. Hildur hlaut styrk frá Atvinnumálum kvenna árið 2015. Við tókum hús á Hildi og forvitnuðumst um hana og fyrirtækið.
Hver er Hildur Magnúsdóttir?
Ég er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri, en að loknu námi þar fluttum við fjölskyldan til Danmerkur, þar sem ég lauk námi í fjármálum og alþjóðaviðskiptum. Árið 2011 fluttum við svo að Ríp í Skagafirði, þ.e ég og maðurinn minn Halldór Gunnlaugsson og börnin okkar þrjú og búum við þar ásamt nokkrum hestum, hænum og ketti.
Segðu okkur frá fyrirtækinu þínu.
Pure Natura er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á fæðuunnum bætiefnum úr lamba-innmat, -kirtlum og jurtum. Fyrirtækið var stofnað í september 2015 af frumkvöðlunum Hildi Þóru Magnúsdóttur, Rúnu Kristínu Sigurðardóttur og Sigríði Ævarsdóttur og er staðsett á Sauðárkróki. Hugmyndina má rekja til hugmyndafræði sem nú er að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum og víðar og snýr að því að betri og nýtanlegri vítamín og bætiefni komi úr mat en úr gerfiefnum sem búin eru til á tilraunastofnum. Þessi nýja tegund bætiefna er því unnin úr raunverulegum matvælum, með öllum þeim efnum og samvirkni sem í þeim finnast og sett fram sem heildarpakki en ekki sem einstök og einangruð efni.
Þær vörur sem fyrirtækið er núna að setja á markað eru: Pure Liver sem er hugsað sem blanda af lifur og völdum jurtum til styrkingar fyrir lifrina, Pure Heart er samskonar blanda nema fyrir hjartað, Pure Nutrition sem hentar vel sem næringaruppbót fyrir alla og Pure Power sem sérstaklega er hugsuð fyrir fólk sem vill meiri orku, er í líkamlegri erfiðisvinnu, líkamsrækt oþh.
Við viljum að sjálfsögðu gefa fólki kost á því að hugsa vel um sig og þá sem því þykir vænt um. Það gerum við með því að bjóða upp á hágæða bætiefni sem innihalda mikið magn næringarefna í bland við þekktar lækningajurtir sem eru án allra aukaefna og lyfjaresta. Einnig skiptir það máli að sláturhús verja töluverðu fjármagni árlega í förgun á hráefni eins og innmat og kirtlum sem Pure Natura nýtir í vörur sínar. Í stað þess að farga þessu hráefni er hægt að vinna úr því hágæða fæðubót og búa þar með til pening í stað sóunar. Við viljum styðja við aukna sjálfbærni í dilkaslátrun. Minnka sóun, auka meðvitund neytenda og stuðla að fullnýtingu afurðanna í heimabyggð.
Hvernig fékkstu hugmyndina?
Hugmyndina má rekja til þess að ég sótti námskeið sem Sigríður Ævarsdóttir kenndi og snerist um það hvað konur geta gert til að bæta heilsu sína og líðan. „Sigríður fór yfir það á námskeiðinu hversu viðkvæm hormónastarfsemi kvenna er fyrir ýmsum eiturefnum í umhverfinu og mikilvægi þess að velja rétt þegar kemur að fæðu, snyrtivörum og öðru sem kann að innihalda þessi efni. Við Sigríður tókum höndum saman að námskeiði loknu og fengum til liðs við okkur Rúnu Kristínu Sigurðardóttur og Halldór Gunnlaugsson, en saman eigum við fjögur þetta félag í dag.
Hvernig nýttist styrkurinn sem þú fékkst frá Atvinnumálum kvenna?
Styrkurinn sem ég hlaut frá Atvinnumálum kvenna hafði mikið að segja fyrir mig. Hann var í raun bæði viðurkenning á því að það sem ég væri að gera, væri metið og viðurkennt úti í samfélaginu og gaf mér drifkraft til að halda áfram á sömu braut. Þegar frumkvöðlar eiga í hlut, getur ferlið verið ansi erfitt á stundum, mikið er um hindranir sem komast þarf yfir og má í raun segja að þrautsegja sé mikilvægasta verkfærið. Það að finna að á mann sé trúað og maður sé studdur fjárhagslega í gegnum a.m.k. hluta af verkefninu, er því ómetanlegt og ýtir undir þessa þrautsegju.
Hvað er mest hvetjandi fyrir þig í þinni vinnu? Hvað er skemmtilegast?
Mér finnst allt í minni vinnu skemmtilegt, frá því að standa í hvítum sloppi með hárnet og prófa vinnsluaðferðir á hinum ýmsu hráefnum, yfir í vöruhönnun, umbúðir, markaðssetningu, áætlanagerð og fl. Ég reyni mikið að sækja í fræðslu og efla tengslanetið, enda held ég að slíkt skipti miklu máli fyrir velgengni í starfi. Ætli skemmtilegasti tíminn sé ekki akkúrat þessa dagana eftir að hafa lokið við þróun á fyrstu fjórum vörunum okkar og fá loksins að sýna fólki afrakstur þeirrar vinnu.
Hvað er erfiðast að takast á við sem frumkvöðull?
Það eru nokkrir þættir sem ég held að reynist frumkvöðlum almennt erfiðir en það er í fyrsta lagi fjármögnun verkefnanna og hinsvegar úthaldið. Eins og stundum hefur verið sagt, þá geta allir fengið góða hugmynd. En að koma hugmyndinni þannig frá sér að eitthvað verði úr, það er allt annað mál. Það eru svo margir nýir hlutir sem maður þarf að læra og má segja að þetta ferli í heild sinni sé bara einn besti skóli sem hægt er að fara í. Mörgum getur reynst erfitt að vinna launalaus í lengri tíma, en það er raunveruleiki sem frumkvöðlar þekkja vel. Það að fá fjárfesta eða lánastofnanir að borðinu með sér getur einnig reynst þrautinni þyngri og það þyrfti að bæta, ef tryggja á framgang nýsköpunar í landinu.
Hver eru næstu skref hjá fyrirtækinu?
Næstu skref hjá okkur stelpunum hjá Pure Natura verða að koma nýju vörunum okkar á markað hér á landi og svo í framhaldinu stefnum við á útflutning á Bandaríkjamarkað. Við munum á sama tíma halda áfram með nýsköpun og þróun og eins og áður sagði eru nokkrar vörur í þróunarfasa hjá okkur í augnablikinu. Fyrsta skref okkar í átt að koma vörunum okkar á markað var að stofna áheitareikning á Karolina fund, þar sem fólk getur heitið á okkur og tryggt sér í staðinn vörur úr fyrstu framleiðslulotu fyrirtækisins. En með því að gera þetta getur fólk ekki bara fengið sent heim að dyrum hágæða bætiefni sem styðja við hjarta og æðakerfi, lifrina og gefa aukna orku, á lægra verði en útsöluverð frá okkur verður þegar vörurnar koma á markað, en einnig stutt við íslenska nýsköpun í leiðinni. „Ég hvet því fólk eindregið til að fara inn á https://www.karolinafund.com/project/view/1199/ og styðja við okkur. Þetta er allt eða ekkert sjóður og bara nokkrir dagar eftir af verkefninu. Ef markmiðið næst ekki fyrir 10.febrúar detta öll áheit niður dauð.“
Getur þú gefið öðrum frumkvöðlakonum góð ráð?
Ég myndi gefa þeim þau ráð að vera duglegar að leita eftir aðstoð, finna styðstu leiðirnar að markmiðum sínum og ekki finnast þær alltaf þurfa að finna upp hjólið. Svo er um að gera að reyna að hafa gaman að því sem þær gera og ekki má gleyma því að það er nauðsynlegt að trúa á og brenna fyrir verkefnið sitt.
Ég segi bara áfram girl power!!!!
Hildur Magnúsdóttir